sunnudagur, maí 25, 2014
föstudagur, ágúst 21, 2009
jæææjaa
mamma er e-ð fram og til baka alltaf í öllu, hún s.s. sameinaði okkur á barnanet.is/ljonin, en svo tímdi hún ekki eftir kreppuna að borga aftur og þá hefur hún ekkert gert síðan þá og núna er svo langt um liðið síðan hún skrifaði sögur af okkur og henni finnst eiginlega bara ómögulegt ða gera þetta ekki áfram...það er svo gaman að lesa þetta svona eftir á finnst henni og eiginlega finnst henni nauðsynlegt að halda bók um hvern og einn því ekki hefur hún útbúið svona bók sem maður skrifar í heldur bara bloggað og þá er gaman fyrir okkur að geta lesið þetta seinna :o)
en s.s. fréttir af honum snæsa...hann er að verða hvorki meira né minna en 7 ára gamall á morgun, hugsa sér. Hann er búin að missa núnaa 7 tennur, 3 núna nýlega og er með göt þar, en hinar eru komnar upp, ef mamma man rétt. Hann er rosalega duglegur orðinn og ótrúlegaa sætur strákur og ofsalega ljúfur, svoldill gaur það verður að viðurkennast en hann er svo ljúfur við bræður sína. Núna liggur hann uppi í rúmi hjá múttu sinni og heldur utan um Sævar Þór litla. En snæsi er búin að vera í butu hjá pabba sínum í svoldið langan tíma núna, ansi mikið búin að vera hjá honum í sumar. En já, hann er einmitt búinn að eignast einn bróðirðinn enn, hjá pabba sínum í þetta sinn svo snæsi er orðinn ansi ríkur af systkinum.
Á mánudaginn byrjar svo skólinn og þetta fer að falla bara í rútínu hjá okkur. Snæsi æfði af kappi kungfu í fyrra og hann langar svakalega mikið að halda áfram....mamman er ekki viss um að það gangi upp þar sem tíminn byrjar klukkan hálf 5 en þá er hún upprekin við að sækja alla hjörðina...svo hann verður að prófa e-ð annað greyið sæti snúðurinn minn....
hvað get ég sagt ykkur fleirra af honum snæsa? Hann er bara reglulega elskulegur og sætur og góður og skemmtilegur og mamma ætlar að knúsa hann í kaf núna
kv. mamman
miðvikudagur, mars 26, 2008
sameining
í takt við sparnaðar tíma á Íslandi ætlar mamma að sameina okkur bræðurnar undir einni síðu....við erum fluttir á barnanet.is/ljonin
sjáumst
þriðjudagur, janúar 22, 2008
gleðiliegt ár



HÆ HÆ kæru vinir.....nú er ég sko farinn að skulda ykkur fréttir af mér, ég ætla að byrja að óska ykkur gleðilegs nýs árs, enda nú komið árið 2008. Þetta verður merkisár í mínu lífi því í haust verð ég 6 ára og byrja þar af leiðandi í skóla. Það er ýmislegt sem ég tengi við að byrja í skóla og er orðinn afskaplega spenntur.
Ég er orðinn líka svo duglegur að reikna og læra stafina, amma á Hellu gaf mér svo sniðugar bækur í jólagjöf og mamma og pabbi eru dugleg að æfa mig með þeim. Ég veit alveg hvað 4+6 eru og 6-5 og svona fleirra. Svo þekki ég marga stafi og er að æfa mig að segja hljóðin þeirra og svona. Mjög mjög duglegur, mamma er svo ánægð því það er afskaplega mikilvægt að ég haldist við efnið í skólanum og svona.
svo verður líka sögulegt að hætta í leikskólanum. ok...mamma mín er kannski svona ofsa erfið en henni leiðist svakalega þessar kerlingar á leikskólanum mínum. Gamlar kellingar sem nenna ekki að hlaupa á eftir svona orkuboltum eins og mér og væla undan því hvað ég sé erfiður og svona, mömmu finnst ég bara EKKERT erfiður! alla vega ekki neitt erfiðari en önnur börn, mömmu finnst að þessar kerlingar ættu bara að skammast sín fyrir að reyna að koma því inn í hausinn á foreldrum að það sé e-ð að börnum ef þau geta ekki alltaf setið kyrr og svona.......sorry..en mamma er bara orðin svo reið út í þessar kerlingar og pirruð að þurfa að sitja undir svona leiðindum og geta ekki látið í sér heyra af ótta við það að það komi niður á mér og þurfa að brosa fölsku brosi framan í kellinguna (þetta er nú helst bara ein, deildarstjórinn, sem er mesta naðra ... og dulbýr allt með sýnu falska brosi...arg! hver nennir að tala við svona yfirborðskennt og falskt fólk, meira að segja Snæbjörn sér í gegnum hana!)....
en jæja..nóg um það....það verða s.s. miklar og spennandi breytingar á þessu ári.
ég er afskalpega heppinn strákur líka, ég á svo marga góða að, bæði ömmur og afa á Hellu og í Reykjavík og frænkur og frænda, systkin og allt og allir eru svo góðir við mig!
hey já vitiði hvað? ég fékk svo mikið flott í jólagjöf, fékk t.d. hjól með gírum, psp tölvu, bækur og föt og bara ógeðslega mikið flott, ég bara átti ekki til orð yfir þessu öllu saman, takk fyrir mig!
svo er ég núna að safna dósum til að geta keypt stýrissleðann hans afa af honum. Hann fékk hann í afmælisgjöf um daginn og við hjálpuðumst að að setja hann saman og nú fæ ég að hafa hann í láni þangað til ég get keypt hann .... rosa spennandi!!
en jæja..bið að heilsa í bili.
yfir og út
mánudagur, nóvember 12, 2007
Myndasíða
Sæl nú!
Af mér er allt gott að frétta. Mamma á ekki til orð hvað ég er að stækka og þroskast þessa dagana. Mamma er svo stolt af þessu sæta unga sínum!
Ég er að æfa sund og það gengur afskaplega vel, enda mikill sundkappi frá unga aldri :O)
mamma verður að viðurkenna að hún hefur ekki tekið saman nógu mikið af gullmolum undanfarið, en það er sko ekki af því ég er hættur að vera fyndin :O) Ég er reyndar orðinn örlítið þroskaðri og því eru gullmolarnir orðnir það líka :O) t.d. um daginn þegar mamma var að kveðja mig og hún sagði við mig gangi þér vel í leikskólanum sæti minn, mundu að hlýða konunum þá svaraði ég "já og mamma gangi þér líka vel í vinnunni, mundu að setja punkt!".
HÉRNA KOMA 2 MOLAR SEM MAMMA Á:
S: "mamma, er betra að sitja þegar maður er að pissa?"
m: "nei nei, allir strákar standa þannig þú skalt standa líka bara"
s: "en mamma, af hverju situr þú alltaf?"
m: "af því mamma er stelpa og stelpur þurfa alltaf að sitja þegar þær pissa"
s: "já, eru þær ekki með svona pullu?"
Í SUNNUDAGASKÓLANUM ÞEGAR PRESTURINN VAR AÐ SEGJA SÖGU
S: SKO, JÉSÚ HANN ER PABBI GUÐS
presturinn: JA, AMK. ER HANN SONUR GUÐS.
En annars vildi mamma aðallega fá að segja ykkur frá myndasíðunni okkar sem við erum svakalega stolt af að vera loksins búin að búa til, þá þurfið þið ekki að fletta í bloggsíðunni ef ykkur langar skyndilega að sjá okkur sætu bræður (já og kannski fá mamma og pabbi að vera líka með)
yfir og út
Svalur
e.s. hérna koma myndasýnishorn



þriðjudagur, júlí 31, 2007
hjá pabba
Jæja jæja, nú er aldeilis langt síðan við settum inn fréttir af Snæbirni.....en hann er s.s. hjá honum pabba sínum í Garðinum.
Hann fór til hans 13.júlí, en þann 14. júlí 2007 gifti Valgeir og Sigrún sig í Fríkirkjunni í Reykjavík og Snæbjörn var að sjálfsögðu mættur til að taka þátt í þessum merkisdegi, reyndar voru Birna og Óskar líka. Snæbjörn var pínu oggu ponsu feiminn í kirkjunni þegar hann átti að labba inn kirkjugólfið ásamt Emilíu stjúpsystur sinni og Sigrúnu, þannig hann neitaði alfarið að fara með. Hann fékk að fylgjast með brúðkaupinu ofan af bekknum uppi og þorði svo að lokum að koma inn í kirkjuna og sitja í altariströppunum hjá Emilíu. Veislan var líka svaka flott, haldin á Iðnó við tjörnina. Innilega til hamingju, Sigrún og Valgeir.
Að öðru leyti er kannski erfitt að segja að svo stöddu máli þar sem prinsinn er ekki á staðnum.....við bíðum öll svaka spennt eftir að fá hann aftur til okkar, vonandi kíkir hann á okkur aðeins í heimsókn. Svo fer að líða að 5 ára afmælinu, hann er aldeilis orðinn stór.
en bið að heilsa í bili, þangað til Snæsi mætir á svæðið
kv. mamman
sunnudagur, júní 17, 2007
laugardagur, apríl 14, 2007
eins og maður er
hæ hó
ég er sko ekki heima hjá mér þessa stundina, er hjá honum pabba, en mamma vill samt blogga til að segja ykkur hvernig lifið og tilveran er hjá mér.....en það er bara allt gott að frétta hjá mér....ég er núna byrjaður að fara snemma í leikskólann og er bara sáttur með það, var reyndar e-ð að biðja mömmu um að sækja mig snemma núna um daginn, kannski er ég e-ð smá farinn að sakna þess að eiga nógan tíma með mömmu, alla vega saknar mamma þess ægilega mikið, það var svo nice að geta vaknað í rólegheitum og leikið sér upp í rúmi, mamma leyfði mér oft að fljúga eða við hjóluðum, eða mamma var mannætu blóm sem át mig (með löppunum sínum) og ég var boðin velkomin í hausasalinn (had to be there, I guess).....en við skemmtum okkur alltaf konunglega saman í rólegheita stundunum okkar....
mamma var rosa góð við mig á föstudaginn, því hún gaf mér svona aðeins fyrirfram sumargjöfina mína, ég fékk SVERÐ!! pælið í því! ég er búin að vera biðja mömmu um þetta alveg ógeðslega lengi og LOKSINS fékk ég svona flott sverð :O)
við fórum á Hellu um páskana, það var svakalega gaman, það var svona ratleikur til að finna páskaeggin, mamma bjó til svona teiknaðann ratleik fyrir mig, teiknaði dótakassann, hundabólið, sjónvarpið og e-ð fleirra, það var svakalega gaman og ég var rosaleg fljótur að finna eggið mitt...og enn fljótari að borða það!!
amma Magga var að lita hárið sitt og ég var svoldið hissa á þessu og spurði af hverju hún væri að þessu eiginlega (var með e-n skrýtin poka á hausnum), amma svaraði að hún vildi lita gráu hárin ..... mér fannst það greinlega ekki sniðugt því ég sagði við hana "maður á bara að vera eins og maður er"...... ég er svo skynsamur :O)
alla vega, mamma fer vonandi að finna myndavélina sína aftur svo hún geti tekið e-r myndi af okkur bræðrum og birt....en þangað til verðið þið bara að skoða gamlar myndir til að muna hvað ég er ofboðslega sætur :O)
kv. S.Valur
sunnudagur, mars 18, 2007
miðvikudagur, mars 14, 2007
hæ hæ kæru vinir
nú er aldeilis langt síðan við skrifuðum hingað inn...greinilega e-ð aðeins meira að gera hjá múttu minni..híhhh....en s.s. er allt gott að frétta hjá mér, lífið gengur auðvitað sinn vanagang, ég fer í leikskólann minn, fer svo að tuskast e-ð með mömmu eftir leikskóla, horfi á barnatímann, borða kvöldmatinn, bursta tennur, lesum bók og fer að sofa....eða svona í grófum dráttum er þetta dagskráin virka daga....aðra hvora helgi fer ég auðvitað alltaf til hans pabba, það finnst mér enn og aftur alveg æðislegt.....svo fæ ég reglulega að gista hjá ömmu og afa líka og aðrar helgar fer ég til ömmu og afa á Hellu, þannig ég er ótrúlega ánægður með lífið....
ég er mikið búin að stækka, mamma er alltaf forviða hvað ég er orðinn stór og duglegur, hjálpa mömmu eins og ég get....
sögur af strák
...við matarborðið á Hellu
s: ég ætla að búa hér í þessu húsi þegar ég verð stór, það er svo fallegt!
...á Hellu að horfa á silvia night
brynjar hafði á orði að þetta væri orðið frekar þreytt e-ð
s: finnst þér silvía ekki skemmtileg?
m: snæbirni finnst sko Silvía svo sæt...
s: neihh!! mér finnst hún falleg!
...snæbjörn er alltaf að spyrja út í hvernig á að segja þetta og hitt á ensku...hann er orðinn ótrúlega góður
p: for you?
...snæbjörn svaraði um hæl
s: no not for me!
....mamma var e-ð að flýta sér og dreif sig niður í bíl með snæsa í eftirdragi en snæbjörn er oft mjög þungur í taumi og kvartar sáran yfir því hvað hann sé þreyttur....eftir að reyna að reka á eftir honum fór mamma á undan honum í gegnum bílskýlishurðina
s: mamma!!! það á ekki að fara á undan börnunum sínum
s: ég ætla að eiga heima á Hellu þegar ég verð unglingur!
...snæbjörn að teikna mynd
s: mamma ég gerði bumbuna á þig
m: já rosa er ég fín
...nokkrum dögum síðar eftir spítalavist og uppskurð mömmu sinnar
s: mamma sjáðu, ég setti götin líka á þig...búin að teikna "göt" á bumbuna
...snæbjörn var veikur, hálsbólgu, hósta, hita og uppköst...eftir 10 daga veikindi ákváðum við að fara með hann til læknis
s: ég vill fara til læknis og láta hann bara taka geislana
..stutt seinna
s: ég vil fara til tannlæknis
....á leiðinni út
s: af hverju getur læknirinn ekki bara komið til okkar?
....læknirinn skoðaði hann og sagði að hann væri með flensu og ekkert í eyrunum
s: læknirinn vildi bara ekkert lækna mig!
s: Silvía nótt er falleg
m: já en hún er frekjudós
s: en hún er rosa fín, mér finnst það alla vega
amma: snæbjörn minn, ertu orðinn þreyttur í kálfunum
s: hahahaha þetta eru ekki kálfar amma, þetta eru lappir
kv. Snæbjörn Valur
þriðjudagur, febrúar 27, 2007
mánudagur, janúar 15, 2007

bjargadi broa....hann var pirradur a golfinu og eg leyfdi honum ad profa kallinn minn
Posted by Picasa
fimmtudagur, janúar 11, 2007
jólin, nýárið og allt
jæja nú finnst mér mamma skulda ykkur færlsu....langt langt síðan hún hefur sagt ykkur hvað er að frétta af mér...þannig hér kmeur það :O)
desember var æðsilegur mánuður, ég hitti fullt fullt af jólasveinum, þó fannst mér standa mest upp úr í þeim efnum þegar ég fékk hann heimsendan í Hryggjarselið, það var hann kertasníkir sem kom og hitt mig og róbert og helenu þar. Mikið var það skemmtilegt....fara þó sögur af því að ég hafi fengið Ólaf frænda minn í heimsókn strax á eftir og fundist þeir með grunsamlega svipaðar raddir....Ólafur Jóhann neitaði því auðvitað...enda er hann ekkert jólasveinn...þó svo að hann sé stundum svoldill jólasveinn í sér blessaður :O) híhíhí segi bara svona..
en já við áttum margar góðar stundir ég og mamma í bakstri og fleirri hlutum við jólaundirbúning, ég hafði einstaklega gaman af því, sérstaklega þegar ég fékk að sleikja sleikjurnar hennar mömmu :O) að ári verð ég víst ekki einn um þær þannig það var eins gott að nýta þetta árið og sleikja og sleikja gómsætt kökudeigið....
svo kom náttl. að bestasta hluta desembermánaðar þ.e. jólin sjálf, ég fékk að horfa á teiknimyndir allan daginn, fór svo í jólabaðið og sparifötin og borðaði svaka góðan mat...ég var alveg pakkasaddur en hámaði í mig möndlugrautin og fékk möndlugjöfina!! svo var komið að pökkunum...ég fékk alveg ofboðslega mikið af pökkum, mamma átti bara ekki orð yfir það hvað við fjölskyldan áttum marga pakka undir trénu okkar, það tók okkur langan langan tíma að opna þá alla....TAKK FYRIR MIG allir saman.....
svo fór ég til pabba og tók upp pakkana með honum á jóladag, seinnipart jóladags fór ég í jólaboð og sama daginn eftir, hitti aldeilis marga...það var rosa gaman hjá mér og ég vildi helst ekki fara heim úr jólaboðunum...
milli jóla og nýárs var ég hjá honum pabba mínum, það var svaka fjör...pabbi var að flytja heim frá Kirkjubæjarklaustri, mikið er ég feginn að fá hann nær mér, þá get ég séð hann oftar....
um áramótin var ég hjá múttu og Óskari og stóra bróa, við borðuðum hjá ömmu og afa Hryggjarseli og Tommi frændi var með. Tommi frændi fór með mig út fyrir matinn að sprengja "einari", þegar hún var farin upp í loftið vildi ég ekki meir, var s.s. skíthræddur við hávaðann....ég var bara fastur hjá ömmu þegar verið var að skjóta við brennuna, en þegar heim var komið sagði mamma mér að ég væri með svona galdragleraugu sem pössuðu mig og þá var ég ekki lengur hræddur og hafði aldeilis gaman af þessu öllu saman, þá allt í einu var ekki til nóg af stjörnuljósum og sprengjum..hehh
svo er ég byrjaður aftur í leikskólanum og bara allt í súper góðum gír.
gleðilegt ár!!!
kveðja Snæbjörn Valur




















